Shrine of Glory/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
| Line 9: | Line 9: | ||
Gengið er inn um gátt með fjórum súlum. Byggingarlistin er í grískri hefð, en í raun á hún rætur að rekja til [[Special:MyLanguage/Atlantis|Atlantis]]. Við göngum inn í mikla höll sem er höggvin út úr fjallinu og þar er gosbrunnur sem geislar frá sér ljóma Ljósgyðjunnar. Við förum niður sex þrep og inn í marmarahöll sem er um þriggja metra há með dyrum hvoru megin sem liggja að kennslustofum og ráðstefnusölum þar sem aðilar [[Special:MyLanguage/Brotherhood|Bræðralagsins]] hittast. | Gengið er inn um gátt með fjórum súlum. Byggingarlistin er í grískri hefð, en í raun á hún rætur að rekja til [[Special:MyLanguage/Atlantis|Atlantis]]. Við göngum inn í mikla höll sem er höggvin út úr fjallinu og þar er gosbrunnur sem geislar frá sér ljóma Ljósgyðjunnar. Við förum niður sex þrep og inn í marmarahöll sem er um þriggja metra há með dyrum hvoru megin sem liggja að kennslustofum og ráðstefnusölum þar sem aðilar [[Special:MyLanguage/Brotherhood|Bræðralagsins]] hittast. | ||
Frá hvelfðu loftinu hangir stór ljósakróna úr hvítum demöntum sem endurspeglar ljósloga sem Bræðralagið, sem þjónar með Ljósgyðjunni, hefur einbeitt sér að hér. Klæddir hvítum skikkjum höndla þessir bræður og systur á athvarfinu með hið hreina hvíta ljós, útfellingu ódáinsveigs, sem beinir virkni ljósgeislanna og stefnu strauma þeirra um náttúruna og þróun plánetunnar. Orkutíðni | Frá hvelfðu loftinu hangir stór ljósakróna úr hvítum demöntum sem endurspeglar ljósloga sem Bræðralagið, sem þjónar með Ljósgyðjunni, hefur einbeitt sér að hér. Klæddir hvítum skikkjum höndla þessir bræður og systur á athvarfinu með hið hreina hvíta ljós, útfellingu ódáinsveigs, sem beinir virkni ljósgeislanna og stefnu strauma þeirra um náttúruna og þróun plánetunnar. Orkutíðni ljóssins er svo mikið í þessu athvarfi að ekkert hljóð greinist og aðeins hrein útgeislun sem kemur frá hálsorkustöð þeirra sem þjóna hér er heyranleg. Á sama hátt eru allar ósamræmdar orkusveiflur, hugsanir og tilfinningar hreinsaðar með styrkleika ljósbylgjanna og aðeins samstillingu er viðhaldið innan athvarfsins. | ||
Ljóssviðið frá þessu athvarfi nær yfir alla plánetuna sem [[Special:MyLanguage/antahkarana|antahkarana]], net af ljósmynstrum sem mynda fíngerða ljósþræði sem beinast frá hjarta Ljósgyðjunnar sjálfrar og loga hennar. Ljósþráðamynstrið sem streymir frá athvarfinu tengist hinu [[Special:MyLanguage/Holy Christ Self|heilaga Krists-sjálfi]] alls mannkyns og örvar þrá manna eftir meira ljósi. | Ljóssviðið frá þessu athvarfi nær yfir alla plánetuna sem [[Special:MyLanguage/antahkarana|antahkarana]], net af ljósmynstrum sem mynda fíngerða ljósþræði sem beinast frá hjarta Ljósgyðjunnar sjálfrar og loga hennar. Ljósþráðamynstrið sem streymir frá athvarfinu tengist hinu [[Special:MyLanguage/Holy Christ Self|heilaga Krists-sjálfi]] alls mannkyns og örvar þrá manna eftir meira ljósi. | ||
Latest revision as of 11:56, 17 June 2025

„Dýrðarhelgidómurinn“ er ljósvakaathvarf Ljósgyðjunnar í Andesfjöllum í Suður-Ameríku. Þetta athvarf gefur frá sér milt, hvítt ljós sem litir geislanna sjö eru samsettir úr.
Lýsing
Gengið er inn um gátt með fjórum súlum. Byggingarlistin er í grískri hefð, en í raun á hún rætur að rekja til Atlantis. Við göngum inn í mikla höll sem er höggvin út úr fjallinu og þar er gosbrunnur sem geislar frá sér ljóma Ljósgyðjunnar. Við förum niður sex þrep og inn í marmarahöll sem er um þriggja metra há með dyrum hvoru megin sem liggja að kennslustofum og ráðstefnusölum þar sem aðilar Bræðralagsins hittast.
Frá hvelfðu loftinu hangir stór ljósakróna úr hvítum demöntum sem endurspeglar ljósloga sem Bræðralagið, sem þjónar með Ljósgyðjunni, hefur einbeitt sér að hér. Klæddir hvítum skikkjum höndla þessir bræður og systur á athvarfinu með hið hreina hvíta ljós, útfellingu ódáinsveigs, sem beinir virkni ljósgeislanna og stefnu strauma þeirra um náttúruna og þróun plánetunnar. Orkutíðni ljóssins er svo mikið í þessu athvarfi að ekkert hljóð greinist og aðeins hrein útgeislun sem kemur frá hálsorkustöð þeirra sem þjóna hér er heyranleg. Á sama hátt eru allar ósamræmdar orkusveiflur, hugsanir og tilfinningar hreinsaðar með styrkleika ljósbylgjanna og aðeins samstillingu er viðhaldið innan athvarfsins.
Ljóssviðið frá þessu athvarfi nær yfir alla plánetuna sem antahkarana, net af ljósmynstrum sem mynda fíngerða ljósþræði sem beinast frá hjarta Ljósgyðjunnar sjálfrar og loga hennar. Ljósþráðamynstrið sem streymir frá athvarfinu tengist hinu heilaga Krists-sjálfi alls mannkyns og örvar þrá manna eftir meira ljósi.
Þetta kyrrláta athvarf hefur efnislega þungamiðju í fallegum heimkynnum uppi í fjöllunum ekki langt frá ljósvakaathvarfinu.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Shrine of Glory.”