Vestur-Shamballa
Á gamlárskvöld 1976 spáði Gátama Búddha framtíðarfærslu kraftsviðs athvarfs síns til Ameríku. Hann sagði að Ameríka væri vissulega staðurinn þar sem allir myndu snúa aftur til inntaks og kjarna Dharma ([þ.e.] kenningar) Sangha. Því hingað munum við flytja Shamballa, hingað munum við flytja þessa ljósborg einn daginn. En í bili verður það innleiðing annars kraftsviðs, Omega-þáttar Shamballa, þar sem Alfa-þátturinn helst staðsettur þar sem hann er.“

Árið 1981 stofnaði Gátama Vestur-Shambhalla sitt uppi yfir „hjarta“ þess sem aðdáendur hans kalla „Innri athvarfið“. Þann 18. apríl sagði hann:
Frá Shamballa sendi ég ljóssveig. Ég hyggst koma fótunum undir grunn hins aldna ... Á þessari stundu hugleiði ég — takið vel eftir því — logaboga Shamballa að Innra athvarfinu sem hinn vestri dvalarbústaður Búddhana og bódhisattvanna og verðandi bódhisattva sem eru dýrkendur Móður-ljóssins.
Þannig að „yang“ nærvera Gátama Búddha er enn á þeim bletti Shamballa í austri í ljósvakaáttund uppi yfir Góbíeyðimörkinni, og „yin“ nærvera hans er í vestri í ljósvakaáttundinni uppi yfir Gallatín-fjöllum í Norður-Klettafjöllunum, sem beinist að Hjarta hins innri athvarfs. Þessi eign, þekkt sem Royal Teton Ranch (hinn Konunglegi Teton búgarður), náttúruleg dómkirkja sem liggur að Yellowstone-garðinum, er hið efnislega hnitmið Vestur-ljósvakaathvarfsins Drottins heimsins. Hér hugleiðum við leyndardóma innri Búddha og Innri Krists og ljá hinum þrígreinda loga okkar til að jarðtengja kraftsvið Shamballa á vesturhveli jarðar.
Gátama Búddha talar um þetta athvarf:
ÉG ER í hinu heilga musteri Shamballa, Shamballa Vesturlanda, þar sem ljósvakaathvarf hefur einnig verið stofnað frá eilífð. Í tengslum við Athvarf hinnar guðdómlegu móður sem er víðáttumikið uppi yfir því svæði sem nú kallast Royal Teton Ranch, er mitt eigið helga musteri í ljósvakaáttundinni uppi yfir Hjartanu, ef svo má að orði komast, forstofan, hið leynda hólf í hjartanu þar sem sálin ferðast, hingað komin til að gangast undir guðlega kennslu.
Þannig, kæru vinir, er hátíðin í Hjarta innri athvarfsins á hverju sumri hátíð áttföldu orkustöðvarinnar og hins áttfalda vegs. Það er innkoman í hið helga musteri hins Stóra hvíta bræðralags, sem leið hans í gegnum launhelgar okkar undir drottni Maitreya sem færir einstaklinginn til helgunar lífs síns, tjaldbúðar sinnar, sem hið helga musteri tilverunnar.[1]
Sjá einnig
Sources
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, s.v. “The Western Shamballa.”
- ↑ Gautama Buddha, "The Heart Chakra of America („Hjarta orkustöð Ameríku“), Pearls of Wisdom, 30. bindi, nr. 72, 11. desember 1987.