Translations:Goddess of Freedom/6/is
Ég hef lifað tímana tvenna frá því ég var undir ægisvaldi grimmustu harðstjóra. Og með logann í hjarta mínu ákvað ég, djúpt í mínu hjarta, að ég yrði frjáls, að ég myndi komast undan oki þessara föllnu engla. Ég vissi hverjir þeir voru, ég þekkti þá og þeir þekktu mig. Þess vegna hnepptu þeir mig í þrældóm og veittust að mér af þvílíkri grimmd sem þið getið ekki ímyndað ykkur. Það var erfitt að sannfæra þjáningabræður mína um illsku hinna föllnu eða að við yrðum að sameinast um að steypa þeim af stóli.