Hinn voldugi blái örn

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Mighty Blue Eagle and the translation is 100% complete.

Hinn voldugi blái örn er myndun blárra leiftursengla sem koma frá Síríusi til að aðstoða Mikael erkiengil í starfi hans fyrir þróun þessa sólkerfis. Hersveitir þeirra mynda hinn volduga örn sem er á innsigli forseta Bandaríkjanna. Þegar þættir hins volduga bláa arnar eru skoðaðir sést að hver fjöður og hluti er af bláum leiftursengli. Þetta er víðfeðm myndun sem fyllir stjörnuhimininn.

Hvíthöfði á flugi

Blái örninn er tákn Guðs-stjörnunnar Síríusar, tákn um vitundina sem svífur í hæstu hæðum og upphefð Móður-gyðjunnar, tákn um dómgreind, árvekni og snerpu hins Alsjáandi auga Guðs. Hinn voldugi blái örn sér óvininn og rekur hann burt fyrir komu barna Hins eina. Þessir englar styrkja einnig starfsemi fjólubláu logaenglanna.

Árið 1977 tilkynnti Mikael erkiengill að Súrýa hefði úthlutað hverjum Verði logans tíu englum frá Hinum volduga bláa erni. Þessir englar munu standa með þér allan sólarhringinn til að efla þjónustu þína við ljósið. Þú getur kallað á þá til að framkvæma verkefni sem þú getur ekki innt af hendi. Mikael erkiengill segir: „Þeir eru næstum því holdlegir, ástvinir, svo áþreifanleg er nærvera þeirra.“[1]

Saint Germain hefur útskýrt að það hafi verið þessi volduga englamyndun sem svaraði bænum George Washingtons (nú uppstigna meistarans Godfre) í Valley Forge:

Ég sé hann krjúpa í bæn, biðja fyrir hönd Ameríku. Og ég sé hersveitir frá Guðs-stjörnunni Síríus hlusta á bænir hershöfðingjans. Ég sé hvernig orðin sem töluð voru af vörum hans þennan kalda dag í skóginum voru bænheyrð af Hinum volduga bláa erni Síríusar, sem svaraði samstundis — þessar hersveitir ljóssins sem lögðu leið sína, settu upp herbúðir umhverfis hann og meðal mannanna og tryggðu sér sigurinn með innstreymi þessa Guðs-ljóss ...

Umfram allt bið ég ykkur, Varðmenn logans, að krjúpa í bæn einu sinni á dag með Godfrey og með mér áður en þið gangið til náða og munið að kalla eftir sigri ljóssins í Ameríku og í hjörtum bandarísku þjóðarinnar. Og ég get fullvissað ykkur um það, við allt sem lifir og hrærist, við allt sem er heilagt í kærleika, að Hinn voldugi blái Örn frá Síríus mun svara kalli ykkar og frelsa þessa þjóð sem eina þjóð undir Guði – óskipt, heil, örugg í einingu ljóssins.[2]

Sjá einnig

Síríus

Súrýa

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, s.v. “Blue Eagle, The Mighty.”

  1. Archangel Michael, “On the Defense of the Path and the Platform of Soul Liberation” („Til varnar vegarins og vettvangs frelsunar sálarinnar“), 10. október 1977.
  2. Saint Germain, "America in 1976" í Elizabeth Clare Prophet, The Greater Way of Freedom: Teachings of the Ascended Masters on the Destiny of America, bls. 90, 91