Hreinsunarhofið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Temple of Purification and the translation is 100% complete.
Other languages:

„Hreinsunarhofið“ er á ljósvakasviðinu uppi yfir eyjunni Kúbu. Það er undir forystu erkiengilsins Sadkíels og heilagrar Ametýstar. Aðalhelgidómurinn er einnig staður Melkísedeks-reglunnar og eilífs prestdæmis allra trúarbragða heims.

Musterið á Atlantis

Áður en Atlantis sökk var Hreinsunarhofið efnislegt athvarf fyrir presta og hofgyðjur Sadkíels-reglunnar. Þessir ákallsmeistarar höfðu ekki aðeins logann í brennidepli heldur einnig uppsafnað virði orsakalíkama sinna til að umbreyta afmynduðum orkustraumum á jörðinni. Þessir tryggu þjónar ferðuðust vítt og breitt, jafnvel inn í geðheimana, og voru, og eru, sjálfskipuð hreinsunarnefnd sem eyðir óhroða, sérstaklega í stórborgum heimsins svo að mannkynið geti haldið áfram að starfa.

Lýsing

Sjö musteri eru á þessu athvarfi. Samstæðan samanstendur af miðmusteri með sjö súlum umkringdu sex minni hofum. Byggingarlist og hönnun miðmustersins svipar mjög til Musteris trúar og verndar erkienglanna Mikaels og Trúar í Banff í Kanada. Musterið er hringlaga með gullhvolfi, fjórum inngöngum og pýramídalaga altari í miðjunni þar sem fjólublái loginn blaktir. Öll musterin eru skrett með ametýstum sem eru greypt í gull, en gullhvolfið er með óbrotnu sniði.

Saint Germain

Á tímum Atlantis þjónaði Saint Germain í Sadkíels-reglunni sem æðstiprestur í Hreinsunarhofinu. Áður en meginlandið sökk var hann kallaður til af einkakennara sínum, hinum Guðdómlega mikla stjórnanda, til að bera frelsisloga frá þessu hofi til öruggs staðar við Karpatafjöllin í Transylvaníu. Þegar Atlantis sökk var Hreinsunarhofið hafið upp á ljósvakasviðið.

Saint Germain sneri síðar aftur til þessa helgidómsstaðar þegar hann endurfæddist sem Kristófer Kólumbus, sem lagði af stað í skipum sínum til að uppgötva nýjan heim. Logi frelsisins dró hann til sín sem segulstál til þessa Musteris hreinsunarinnar á ljósvakasviðinu og innri minningin um að hafa þjónað í þessu musteri á Atlantis. Hann stundaði nám þar á milli æviskeiða og einnig þegar hann var í endurfæðingu en þá yfirgaf hann líkama sinn í svefni. Hvatningin til að koma til þessara eyja var hvati frelsisins sem hjálpaði honum að marka nýja stefnu fyrir nýtt land.

Grunntónn athvarfsins er „Dónárvalsinn“ sem Jóhannes Strauss samdi, innblásinn af Saint Germain.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Temple of Purification.”