Translations:Angel of the LORD/2/is
Móse opinberaðist ÉG ER-nærveran fyrir milligöngu „engils DROTTINS sem birtist honum í eldsloga,“[1] Hún var raunveruleg nærvera og persónugervingur ÉG ER SÁ SEM ÉG ER í staðgenglinum Mikael erkiengli. Þessi sannleikur staðfestir þá vígslu sem Guð veitti ákveðnum háþróuðum verum í himneska helgiveldinu til að bera í raun og veru í persónu sinni – í orkustöðvum sínum og árusviði – þunga nærveru Guðs. Þannig hafa spámenn hans, boðberar og hinir Krists-bornu (Christed ones) borið þessa „byrði“ DROTTINS,[2] eins og þeir voru kallaðir til að vera sýnilegir guðspjallamenn hans í efnisformi, og tóku sig til að þjóna með englunum, erkienglunum, kerúbunum og serufunum fyrir hönd sálna í þróun sinni á jörðu.