Translations:Hercules and Amazonia/8/is
Elóhíminn Herkúles er árþúsundum eldri en grísk goðafræði. Þegar Guð bauð að þetta sólkerfi yrði myndað, kom tilskipunin: „Verði ljós,“ og það varð ljós. Það var Herkúles sem kallaði saman hina voldugu elóhíma, formsmiðina, til að koma fram og hrinda guðdómlegri áætlun Sólar-logosins í framkvæmd. Mikill styrkur hans er sóttur í kærleikríka hlýðni hans við vilja Guðs. Hann veitir vernd með bláu leiftri sínu og uppsöfnuðum slagkrafti í vilja-krafts aðgerðum sem svar við kalli mannkyns um styrk og stefnu.