Translations:Lemuria/8/is

From TSL Encyclopedia

Guðsmóðurdýrkunin, sem átti fyrir að liggja að komast á laggirnar á tuttugustu öld, var grunnurinn að siðmenningunni í Lemúríu — þeirri týndu heimsálfu sem sökk í Kyrrahafinu fyrir mörgum þúsundum ára. Þróun lífs í móðurlandinu og nýlendum hennar stóð fyrir upphaflegri niðurstigningu andans í efnið á þessari plánetu. Hér, þar sem fyrstu rótarkynþættirnir luku hringrás guðdómlegrar áætlunar sinnar á ekki einni gullöld heldur nokkrum sem náðu hápunkti sínum fyrir fall mannsins. Hinn karllægi geisli (niðurstígandi spírall andans) varð að veruleika í gegnum hinn kvenlæga geisla (uppstígandi spíral efnisins) í heimi formsins.