Translations:Shamballa/4/is

From TSL Encyclopedia

Fjögur hundruð forgöngumenn fóru á undan Sanat Kúmara til að reisa á Hvítu eyjunni í hinu ljómandi bláu Gobi-hafi (þar sem Gobi-eyðimörkin er núna) hið stórkostlega athvarf sem átti eftir að verða á öllum tímum hið goðsagnakennda Shamballa. Þessi borg var upphaflega efnisleg eftirlíking af Venusarborg Kúmaranna. Sjálfboðaliðarnir frá Venus einbeittu sér hér að hundrað fjörutíu og fjórum dyggðum í logum frumefnanna sem mynduðu eftirmynd af demanti sem er í brennidepli í hinni Miklu meginmiðstöð. „Hvíta borgin“ var aðgengileg frá meginlandinu með fallegri marmarabrú.