Master of Paris/is: Difference between revisions
No edit summary |
No edit summary |
||
| Line 19: | Line 19: | ||
Þetta athvarf þjónar einnig sem efnisleg miðstöð (ljósbeinir) fyrir þjálfun chela-nema Bræðralagsins. Hún er ein af fáum efnislegum miðstöðvum sem eftir eru á jörðinni. | Þetta athvarf þjónar einnig sem efnisleg miðstöð (ljósbeinir) fyrir þjálfun chela-nema Bræðralagsins. Hún er ein af fáum efnislegum miðstöðvum sem eftir eru á jörðinni. | ||
[[El Morya]] hefur talað um löngun Saint Germains til að hafa efnislegar miðstöðvar í borgum heimsins, eins og meistarinn í París: | [[Special:MyLanguage/El Morya|El Morya]] hefur talað um löngun Saint Germains til að hafa efnislegar miðstöðvar í borgum heimsins, eins og meistarinn í París: | ||
<blockquote>Saint Germain lætur sér ekki nægja að þjálfa sálirnar í ljósvakaathvörfum [[Stóra hvíta bræðralagsins]]. Nei, hann er staðráðinn í að hafa miðstöð eins og meistarinn í París, ljósbeinistað í efnislegu áttundinni, ljósheimili í borginni, ljósheimili þar sem hægt er að taka á móti sálum.<ref>{{GWF}}, bls. 60.</ref></blockquote> | <blockquote>Saint Germain lætur sér ekki nægja að þjálfa sálirnar í ljósvakaathvörfum [[Stóra hvíta bræðralagsins]]. Nei, hann er staðráðinn í að hafa miðstöð eins og meistarinn í París, ljósbeinistað í efnislegu áttundinni, ljósheimili í borginni, ljósheimili þar sem hægt er að taka á móti sálum.<ref>{{GWF}}, bls. 60.</ref></blockquote> | ||
Revision as of 14:30, 2 August 2025

„Meistari Parísar“ steig upp til himna fyrir meira en 500 árum. Hann er yfirmaður „Franska ráðsins“, þótt hann sé ekki Frakki. Honum er lýst sem hávöxnum, myndarlegum manni með hirðlegan þokka.
Þessi meistari gegndi lykilhlutverki í að koma á fót dulspekiskólum Stóra hvíta bræðralagsins|Bræðralagsins í París á 18. og 19. öld. Hann vinnur meðal annars með Saint Germain, Páli Feneyingi, uppstigna meistaranum Alexander Gaylord og kvenmeistaranum Letó. Útgeislun Saint Germains og Porsju, gyðju réttlætisins er sérstaklega áberandi um alla Sainte-Chapelle kirkjuna og hinnar aðliggjandi Palais de Justice (Hallar réttlætisins). Einnig er Notre Dame dómkirkjan á Île de la Cité þar að finna í brennidepli fyrir Maríu guðsmóður.
Athvörf
► Aðalgrein: Athvörf meistara Parísar
Meistarinn í París heldur vilja Guðs í brennidepli í Sainte-Chapelle á Île de la Cité í hjarta Parísar, fæðingarstaðar Frakklands. Hann hefur ljósvakaathvarf uppi yfir efnislega ljósbeininum (móttöku- og sendistöð) þar sem hann viðheldur virkni þrígreinda logans.
Hann heldur einnig ljósbeini á efnissviðinu í París, sem hann sækir oft í efnislíkama. Athvarf hans er fallegur gamall kastali með mörgum gluggum sem gnæfa yfir París. Lærisveinar hans viðhalda þessum ljósbeini og meistararnir nota það oft sem samkomustað í París þaðan sem þeir geta beint þeirri orku sem þarf til að halda í horfinu fyrir stjórnir Evrópu.
Þetta athvarf þjónar einnig sem efnisleg miðstöð (ljósbeinir) fyrir þjálfun chela-nema Bræðralagsins. Hún er ein af fáum efnislegum miðstöðvum sem eftir eru á jörðinni.
El Morya hefur talað um löngun Saint Germains til að hafa efnislegar miðstöðvar í borgum heimsins, eins og meistarinn í París:
Saint Germain lætur sér ekki nægja að þjálfa sálirnar í ljósvakaathvörfum Stóra hvíta bræðralagsins. Nei, hann er staðráðinn í að hafa miðstöð eins og meistarinn í París, ljósbeinistað í efnislegu áttundinni, ljósheimili í borginni, ljósheimili þar sem hægt er að taka á móti sálum.[1]
Meistararnir þurfa á nemum að halda til að halda við þessum ljósbeinum. Morya bað um að hinir hugdjörgfustu, framtakssömustu brautryðjendurnir gæfu sig fram.
Erkienglarnir Jófíel og Kristín hafa einnig rætt um ljósbeina í Evrópu og um allan heim og löngun þeirra til að opna athvarf [í líkingu við] meistara Parísar:
Boðskapur okkar, þá, um hið mikla ljós sem stígur niður — frá Páli Feneyingi, Karma-ráðinu og Frelsisgyðjunni, um útbreiðslu þessa ljóss — er fórnfæring okkar til ykkar: víddir guðsvitundar sem víkka eins og kofi sem breytist í ljóshöll.
Mín ástæru, þið sem dýrkið helgidómana, dómkirkjurnar, söguna og menningu hins Guðdómlega mikla stjórnanda í Evrópu – opnið hjörtu ykkar! Gefið líf ykkar og allan stuðning í ríkum mæli. Því við myndum, einmitt í dag, opna athvarf okkar í París ef sálir ljóssins byðust til að gerast húsverðir þessa helgidóms Saint Germains og meistara Parísar.[2]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Paris, Master of.”
Elizabeth Clare Prophet, 13. nóvember 1973.
- ↑ Elizabeth Clare Prophet, The Greater Way of Freedom: Teachings of the Ascended Masters on the Destiny of America, bls. 60.
- ↑ Jophiel and Christine, “For Europe: A Dispensation and a Cycle,” Pearls of Wisdom, 24. bindi, nr. 12, 22. mars 1981.