Erkiengill
Yfirvald englasveita; Æðsta tign í ríki engla.
Erkiengill ríkir yfir sérhverjum hinna sjö geislasviða, ásamt guðlegri uppfyllingu sinni, kvenerkiengli. Erkienglaparið felur í sér Guðs-vitund geislans og stjórna þau englaskörum sem þjóna undir stjórn þeirra á þeim geisla.
Einnig eru erkienglar og kvenerkienglar sem ríkja yfir leyndu geislunum sjö.
Erkienglar og kvenerkienglar geislasviðanna og staðsetning athvarfs þeirra á ljósvakasviðinu er eftirfarandi:
| Geisli | Erkienglar | Athvarf á ljósvakasviðinu |
|---|---|---|
| Fyrsti geisli | Erkienglarnir Mikael og Trú | Musteri vonarinnar og verndarinnar, Banff, nálægt stöðuvatninu Louise, Kanada |
| Annar geisli | Erkienglarnir Jófíel og Kristín | Athvarf Jofíels og Kristínar, sunnan við Kínamúrinn nálægt Lankóv, norðarlega í miðhluta Kína |
| Þriðji geislinn | Erkienglarnir Samúel og Karítas | Musteri kristals-rauðgula logans, St. Louis, Missouri, Bandaríkjunum |
| Fjórði geislinn | Erkienglarnir Gabríel og Von | Athvarf Gabríels og Vonar, milli Sacramento og Mount Shasta, Kaliforníu, Bandaríkjunum |
| Fimmti geislinn | Erkingillinn Rafael og María guðsmóðir | Atharf Rafaels og Maríu guðsmóður, Fátíma, Portúgal |
| Sjötti geislinn | Erkienglarnir Úríel og Áróra | Athvarf Úríels og Áróru Tatra-fjöllin, sunnan við Krakóv, Póllandi |
| Sjöundi geislinn | Erkineglarnir Sadkíel og Heilög Ametýst | Musteri hreinsunarinnar, Kúbu |
| Áttundi geislinn | Erkiengillinn Ússíel og tvíburalogi hans | (hefur enn ekki verið upplýst) |
| Leyndu geislarnir fimm | Erkienglar leyndu geislanna fimm |
Sjá einnig
Skrá yfir uppstigna meistara, algeimsverur og engla
Heimildir
Hartmann Bragason, Austurlenskar rætur kristninnar. Upprunalegar kenningar frumkristninnar og guðfræði nýja tímans. Reykjavík, Bræðralagsútgáfan, 2022, Orðalisti, bls. 254.
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, Saint Germain On Alchemy: Formulas for Self-Transformation.