Karmíska ráðið

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Karmic Board and the translation is 100% complete.

Karmíska ráðið er átta manna hópur uppstiginna meistara. Þeir úthluta réttlæti til þessa heimskerfis; dómnefnd sem náðar og dæmir í karmamálum sérhverrar sálar. Karmadrottnarnir eru guðlegir meðalgöngumenn á milli fólksins og karma þess. Þeir þjóna undir tuttugu-og-fjögurra-manna öldungarráði.

Allar sálir verða að fara fyrir karmíska ráðið fyrir og eftir hvert æviskeið á jörðu þar sem þeim er úthlutað verkefni og karma fyrir hvert lífsskeið og fá svo endumat á frammistöðu sinni eftir ævilok. Fyrir atbeina varðveislumanna gagnasafna og skrásetningaengla hafa Karmadrottnar aðgang að æviskrám hvers lífsstraums á jörðinni. Þeir ákveða hverjir skulu endurfæðast, svo og hvar og hvenær. Þeir úthluta sálum til fjölskyldna og samfélaga, mæla út hvern „smástaf og stafkrók“ karma-lögmálsins sem verður að jafna. Karmíska ráðið starfar í samræmi við ÉG ER-nærveru einstaklingsins og Krists-sjálfs hans, ákvarða hvenær sálin hefur áunnið sér réttinn til að losna úr viðjum karmahjólsins og hringrás endurfæðinga.

Aðilar

Karmíska ráðið samanstendur af hinum Mikla guðlega stjórnanda (sem er fulltrúi fyrsta geislans), frelsisgyðjunni (á öðrum geisla), hinum uppstigna kvenmeistara Nödu (á þriðja geisla), elóhímnum Syklópeu (á fjórða geisla), Pallas Aþenu, gyðju sannleikans (á fimmta geisla), Porsju, gyðju réttlætisins (á sjötta geisla) og Kvan Yin, gyðju miskunnseminnar (á sjöunda geisla). Nýlega varð Vairochana, einn af fimm Dhyani búddhunum, áttundi aðilinn að Karmiska ráðinu.

Vegna hinnar miklu miskunnsemi sinnar hefur Guð smurt þessar verur til að starfa sem meðalgöngumenn á milli fullkomnunar lögmálsins og ófullkomleika þeirra sem hafa vikið af vegi náðarinnar. Karmíska ráðið, sem þjónar á stigi Krists-sjálfs mannkynsins, vegur og metur daglega orkunotkun mannkynsins svo að ofan, sem að neðan.

Starfsemi

Karmadrottnar kveða dómsúrskurði í hringrásarferli einstaklingskarma, hópkarma, þjóðarkarma og heimskarma. Þeir leitast alltaf við að beita lögmálinu á þann hátt sem gefur fólki hið besta tækifæri til að taka andlegum framförum. Þegar Karmadrottnar losa um uppsafnaða hringverkun karma sem leitar útrásar fyrir plánetuna á allt náttúruríkið hlut að máli í niðurkomu þess sem er alltaf samkvæmt hringrásarlögmálinu.

Náttúruandar eru helsta tæki karmískrar endurgjafar vegna sundurlyndis mannkyns. Fyrsta minningin sem við höfum af þessu fyrirbæri er þegar hin horfna heimsálfa Lemúría sökk til botns Kyrrahafs fyrir mörgum þúsundum ára vegna karmaskuldar sem leiddi af misnotkun presta og meypresta á hinum helga eldi við ölturu Guðs.

Breytingar á loftslagsskilyrðum (þar með taldir stormar, flóð, eldar, hvirfilbylir, eldgos og hamfarir) verða til vegna misnotkunar mannsins á skapandi krafti heilags anda. Við þessar reglubundnu truflanir í náttúrunni, þegar Atlas varpar af herðum sínum sundurþykkju mannsins, endurheimtist jafnvægi höfuðskepnanna fjögurra og fjögur lægri svið plánetunnar hreinsast og endurstillast.

Bænaskrár fyrir mannkynið

Aðalgrein: Bænaskrár fyrir Karmíska ráðið

Tvisvar á ári, við vetrar- og sumarsólstöður, hittast Karmadrottnar í Royal Teton athvarfinu til að fara yfir beiðnir frá óuppstignu mannkyni. Hefð er fyrir því að nemar meistaranna skrifi sérbeiðnir til Karmíka ráðsins þar sem þeir óska eftir krafti frá himni, ívilnun og styrktaraðilum fyrir uppbyggileg verkefni og viðleitni. Bréfin eru helguð og brennd. Englarnir bera síðan frumdrætti þessara bréfa á ljósvakasviðinu til Royal Teton athvarfsins þar sem Karmadrottnarnir fara yfir þau.

Nemar sem biðja um aðstoð geta boðist til að sinna tiltekinni þjónustu eða verki eða skuldbundið sig til að fara með ákveðnar bænir og möntrufyrirmæli sem meistarar geta notað sem „fjárfestingu“ fyrir eitthvað sem þeir vilja að sé komið í verk í heiminum. Þeir geta líka boðið hluta af orsakalíkama sínum sem orku fyrir meistarana til afnota en slíkt tilboð verða Karmadrottnar að samþykkja. ÉG ER-nærveran og hið heilaga Krists-sjálf ákvarða nákvæma hlutdeild þessa tilboðs.

Heimildir

Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “Karmíska ráðið.”