Magða

Hinn uppstigni kvenmeistari, Magða, er tvíburalogi Jesú. Hollusta hennar við Krist, og sérstaklega við meistarann Jesú, hefur í aldanna rás gert henni kleift að byggja upp innra með sér mikinn uppsafnaðan lækningarmátt hans. Hún heldur vonarneista fyrir alla sem þrá að sigrast á freistingum heimsins.
Tvö þúsund árum eftir uppstigningu tvíburalogans síns, steig Magða upp frá Uppstigningarmusterinu í Lúxor. Hún hefur verið vígsluhafi í Lúxor frá síðasta æviskeiði sínu sem predikarinn Aimee Semple McPherson (1890–1944).
Fyrri jarðvistir
María Magdalena
Magða endurfæddist sem María Magdalena, sú sem Jesús rak sjö illa anda út úr. Sigur hennar ber vitni um þá staðreynd að allir sem sannarlega þrá frelsi eru sannarlega verðugir kærleika hins mikla meistara og geta ákallað í nafni hans kraft Guðs sem mun reka út óhreina anda sem hafa komist inn í musteri tilverunnar. Vissulega er jörðin skólastofa sem þróun annarra reikistjarna og sólkerfa tekur mið af og orðið vitni af hinu mikla kraftaverki uppstigningar þeirra sem hafa stigið niður í djúp sjálfsniðurlægingar áður en þeim opinberaðist Kristur og ákváðu síðan með honum að sigrast á öllum uppsöfnuðum niðurdragandi þunga sem hefur leitt til falls manns eða konu.
Síðari endurfæðingar
Árið 1974 talaði Magða um fyrri æviskeið sín:
Það rann upp fyrir mér, eins og á páskadagsmorgni þegar hann kom til mín og í kvöldmáltíðinni í loftherberginu,[1] að boðskapur hans innihélt ekki aðeins orðalagið „lausn“ heldur einnig sigurhorfurnar. Og ég gerði mér grein fyrir því að eins og hann hafði verið frelsari sálar minnar, lífs míns, þá gat ég líka verið starfstæki hans. Eins og risavaxið rafskaut gat ég beitt loga Krists og útbreitt hann til allra kynslóða. Og þannig var mér veitt að endurfæðast aftur og aftur til þessarar guðsþjónustu.
Á hverju æviskeiði sem eftir fylgdi hélt ég minningunni á lofti um þá dýrmætu stund, þá reynslu þegar myrkrið flúði og ljósið fyllti líkama minn. Og ég uppgötvaði að þolraun Drottins var gefin til þess að ég gæti náð tökum á hverri af þessum kjörnum tilverunnar, eins og hann sjálfur sigraðist á. Karmadrottnar veittu mér jarðlíf til að tileinka mér hverja þessarra tilvistarkjarna til að öðlast færni og sigur. Þetta var til þess að ég gæti borið fram ávexti sigursins á öllum sjö geislunum fyrir dýrlega endurkomu uppstigningarinnar.[2]

Aimee Semple McPherson
► Article principal: Aimee Semple McPherson
Sagan af lífi Aimee Semple McPherson sýnir að hún varði lífi sínu af miklum krafti í þjónustu Guðs. Hún predikaði af miklum móð boðskap Jesú um lækningu og hjálpræði um allan heim. Þúsundir manna streymdu á vakningarsamkomur hennar þar sem þær voru upptendraðar af hinni miklu guðshollustu hennar við Drottin sinn.
Árið 1917 hóf Aimee útgáfu mánaðartímarits síns, „Bridal Call" ("Brúðarkallið"), sem hún samdi og ritstýrði á ferðalagi sínu á milli borga. Árið 1919, áður en hún hélt predikun í Baltimore í Maryland, talaði Jesús við hana um þjónustu hennar: „Þegar þú leggur hendur þínar yfir menn, mun ég leggja mínar hendur yfir þínar. Og allan tímann sem þú stendur þarna, mun ég standa beint fyrir aftan þig. Og þegar þú talar Orðið, mun ég senda kraft heilags anda. Þú ert einfaldlega málpípan í símanum. Þú ert takkinn á ritvélinni. Þú ert aðeins munnur sem heilagur andi getur talað í gegnum.“
Í Oakland í Kaliforníu, í júlí 1922, flutti Aimee predikun sem hét „Sýn Esekíels“ og fékk innblástur frá Jesú til að kalla boðskap hans „Ferningsfagnaðarerindið“ um Jesú frelsarann, Jesú skírarann með heilögum anda, Jesú lækninn og Jesú hinn komandi konung. Þann 1. janúar 1923 opnaði hún Angelus-musterið í Los Angeles, hinar alþjóðlegu höfuðstöðvar sínar. Þar predikaði hún fyrir þúsundum manna, stundum í búningi sem var hannaður til að tjá inntak prédikunar hennar. (Til dæmis, fyrir prédikunina um „lögmál Guðs“ klæddist hún lögreglubúningi.) Frá 1923-26 dvaldi Aimee nálægt Angelus-musterinu. Hún opnaði bænarturn sinn sem var opinn allan sólarhringinn, LIFE (Lighthouse of International Foursquare Evangelism) biblíuskólann og útvarpsstöðina sína KFSG (Kall Four Square Gospel).[3]
Aimee var einnig mjög ofsótt og stóð ein af sér miklar áskoranir, en alla sína þjónustu lifði hún í eftirvæntingu eftir þeim degi sem Jesús myndi koma til að taka á móti henni sem væntanlegri brúði sinni. Hún steig upp til himna við lok þess lífs og þann 22. nóvember 1990 tilkynnti Jesús Kristur að Magða hefði loksins jafnað 100 prósent af karma sínu, meira en fjörutíu og fimm árum eftir andlát sitt.
Hugleiðingar um líf hennar sem Aimee
Hin uppstigni kvenmeistari Magða talaði síðar um þetta og um líf sitt sem Aimee:
Ég fagna því að hafa upplifað erfiðu árin þar sem ég var að jafna karma mitt. Og þessi ár voru sannarlega erfið því ég hafði ekki tekið á móti fjólubláa loganum sem var verið að taka í notkun þegar ég þjónaði í Kaliforníu.
Þannig, þrátt fyrir allan kærleika Jesú og alla þjónustu sem ég veitti um allan heim (jafnvel með því að ferðast með skipi til Ástralíu og til fjarlægustu heimshorna), þegar ég hvarf af sjónarsviði lífsins, hafði ég enn karma mitt til að takast á við. Og það var þá, að ég sá, skildi og meðtók fjólubláa logann.
En ég þurfti um áratuga skeið að beita fjólubláa loganum sem náði ekki aðeins til fyrra æviskeiðs míns heldur einnig til margra fyrri lífa. Og þetta var einfaldlega vegna þess að mér var aldrei gefin þekking á fjólubláa loganum þegar ég var í holdinu. Klerkar kristninnar, bæði mótmælenda og kaþólskra, tóku aldrei við Saint Germain eða gjöf hans, fjólubláa logann, og því boðuðu þeir hann aldrei.
Gerið þið ykkur grein fyrir því að ég þjónaði í Angelus-musterinu í Los Angeles á sama tíma og Guy Ballard og Edna Ballard voru einnig að breiða út boðskapinn um fjólubláa logann?
Það er sorglegt að svo margir hafi fest sig við rétttrúnaðinn svo að þeir geta ekki opnað huga sinn og séð fjólubláa logann sem gegnsýrði árur dýrlinganna sem komu úr ÉG ER-hreyfingu [Guys og Ednu Ballards] og stigu upp til himins einmitt vegna þess að þeir meðtóku hinn fjólubláa loga Saint Germains.
Þannig mun ég segja það aftur og aftur: Hversu dásamlegt það er að kalla fram fjólubláa logann á meðan maður er hér á jörðinni! Hversu dásamlegt það er að geta varpað fjólubláa loganum inn í fjarlæga fortíð og fjarlæga framtíð! Hversu dásamlegt það er að fjólublái loginn hefur bjargað svo mörgum sálum, að hann hefur létt byrði þeirra og komið þeim í stand til að stíga upp![4]
Köllun Jesú og Mögðu
Jesús og Magða hafa útskýrt:
Á tveggja þúsund ára fresti höfum við komið með djúpstæðan boðskap og fórnfæringu lífs okkar til að ná til tvíburaloga ykkar, til að hvetja ykkur til að snúa aftur til hinna miklu mustera Bræðralagsins og til skóla Maitreya.
Þið verðið að skilja að faðir ykkar og móðir, jafnvel Adam og Eva, eru í vissum skilningi frumgerð margra tvíburaloga sem yfirgáfu launhelgarnar, lokkaðir af freistingum þess mikla hvata sem yfirráð yfir stjórnmála-, efnahags- og félagslegum sviðum veitti sem höggormurinn hélt á lofti en hann táknar þann hóp engla sem eru fræðimennirnir, sem eru sófistarnir (siðferðislegir afstæðishyggjumenn), sem þykjast vera spekingarnir en eru ekki hinir sönnu vitringar frá Austurlöndum.
Þannig, sjáið til, verður alltaf freisting til staðar til að ná tökum enn einu sinn enn á veraldlegri þekkingu sem á að veita lykillinn að uppljómun, lykillinn að úrlausn vandamála heimsins.
Blessaðir hjartkæru vinir, menn hafa búið yfir mikilli þekkingu á vísindum og uppfinningum í tugþúsundir ára. Hefur það bjargað heiminum frá sjálfseyðingu? Hefur það veitt mönnum aðgang að kjarna lífsins og tilverunnar? Gerið ykkur grein fyrir að ævalöng saga milljóna ára liggur að baki þar sem reynt hefur verið að leysa vandamál efnisjöfnunnar án þess að menn hafa borið klæði ljósvakamustersisins....
Við höfum rætt saman, ásamt Maríu guðsmóður, [Maríu mey] — Magða og ég — um hvað við gætum gefið ykkur af æðstu og bestu ávöxtum visku okkar og reynslu, þar sem við sjáum langa samfellu þróunar sálar ykkar og alls þess sem við höfum kynnst. Blessuð, ef svik hefðu ekki verið í tafli væri gullöld á jörðu nú á tímum og þið gengjuð um sem meistarar meðal manna....
Þetta er því skuldbinding okkar og gjöf – að þeir sem finna fyrir innri sundrungu, sem togar þá og teygir í allar áttir – sem Páll postuli talaði um af svo miklum skilningi, persónulega og napurlega – þá getið kallað til okkar og beðið um að logandi eldkeflið verði fært okkar.
Takið eftir orðinu: „eldkefli“ – vafningur minn og ástkærrar Mögðu sem táknar Alfa, Ómega. Þegar þetta fléttast saman myndast guðdómlegur Hermesarstafur. Þessir tveir vafningar eru úr gulli. Þeir eru úr gulli eins og þið getið ímyndað ykkur gullvír af bestu og hreinustu gæðum gulls án allrar málmblöndu.
Þannig myndar þetta skínandi gullna kefli sólareldsins, vafninga sem fléttast saman, Hermesarsprota Alfa og Ómega. Hann er ekki stór. Þessir vafningar eru nákvæmlega nógu stórir til að umlykja efnislega hryggsúlu hvers og eins frá hvirfli til ilja.
Nú geta þeir sem einlæglega þrá að yfirstíga dimmnætti og geðheimsvið karma síns sem stefnir niður á við, þeir sem þrá að umbreyta öllu þessu með guðlegri þjónustu og chela-nemaþjálfun, þeir sem vilja binda þess heit að sýna hlýðni, hreinlyndi og hófsemi, geta beðið um þessa gjöf. Við munum veita hana.
Og með gullvafningnum, með þessu eldkefli, hjartkæru vinir, og með því að fylgja leið nýliðans, hins helga bróður og hinnar heilögu systur hinnar guðdómlegu reglu, getið þið náð því marki, með keppikeflinu og með þjónustu, umbreytingu þeirra þátta verunnar sem toga í allar áttir eins og hestar sem hlaupa út um víðan völl og lúta ekki agastjórn reiðmannsins.[5]
Þið getið ákallað Mögðu. Hún hefur lifað á jörðinni og þekkir „via dolorosa“, hina sársaukafullu leið (þyrnistráða veg). Hún hefur gengið við hlið okkar í margar aldir. Nú segir hún að hún sé aðeins spölkorn á undan okkur á vegi lífsins. Kærleikur Mögðu er óendanlegur. Hún getur hjálpað ykkur að mynda samband við tvíburaloga hennar, hinn ástkæra Jesú. Þið getið kallað fram sérstakan uppsafnaðan kraft hennar og hæfileika til að rísa frá lægsta vitundarstigi upp á hæsta stig á einni nóttu, afsalað ykkur manngerðum afstæðum hugmyndum góðs og ills og umfaðmað Krist sem stendur í miðju musteris tilverunnar í ykkar eigin brjósti. Með fullkominni trú á orð Meistarans: „Syndir þínar eru þér fyrirgefnar,“ ber hún kyndil vonarinnar til allra sem leita æðri leiðar.
Athvarf
► Aðalgrein: Upprisumusterið
Magða þjónar frá Musteri upprisulogans með Jesú og Maríu.
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, “Magða.”
- ↑ Jóhannes 20:11–23; Postulasagan 1:12–14; 2:1–12.
- ↑ Magda “All Energy Is Destined to Return to God” („Öllum krafti er ætlað að snúa aftur til Guðs“), Pearls of Wisdom, 61. bindi, nr. 13, 1. apríl 2018.
- ↑ Frekari upplýsingar um Aimee og líf hennar er að finna í Aimee Semple McPherson, This is That (Það er nú það) (New York: Garland, 1985); Aimee: Life Story of Aimee Semple McPherson (Ævisaga Aimee Semple McPherson) (Los Angeles: Foursquare Publications, 1979).
- ↑ Magda, “Transmute the Past and the Future” („Umbreyttu fortíðinni og framtíðinni“); Pearls of Wisdom, 40. bindi, nr. 36, 7. september 1997.
- ↑ Jesus and Magda, “A Torch of Responsibility” („Kyndill ábyrgðar“), Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 62, 26. desember 1984.