Dagur Omri-Tas og Saint Germains

From TSL Encyclopedia
This page is a translated version of the page Omri-Tas and Saint Germain’s Day and the translation is 100% complete.
Other languages:

Þann 14. október 1991 tilkynnti Omri-Tas þrjátíu og þriggja daga ívilnun þar sem hann myndi dvelja á jörðinni til að „gefa okkur uppörvun“ og margfalda áhrif möntrufyrirmæla með fjólubláa loganum:

Það er á þessu hringrásarferli, kæru vinir, þegar þið getið frelsað sálir ykkar með því að margfalda nærveru mína og enn frekar fjólubláa logann að ég leyfi mér að fullyrða að þið ættuð ekki fara á mis við svo mikið sem eitt andartak af því að fara með möntru, jafnvel þó að þið séuð í miðjum klíðum við eitthvað eins og að syngja [lof]söngva ...

Já, kæru vinir, gætið þess að þið skapið ekki karma meðan á nærveru minni stendur með því að nýta ykkur ekki þá gjöf sem ég hef gefið ykkur. Því ég þrái að hafa algjört, óbundið frelsi til að geta gefið jörðinni á erfiðum stundum þær blessanir og gjafir fjólubláa logans [sem vantar svo sárlega] ...

Eitt hundrað fjörutíu og fjögur þúsund prestar hins helga elds frá fjólubláu plánetunni hafa fylgt mér í þessari þrjátíu og þriggja daga dvöl. Megi ykkur vera ljóst að við ætlum að setja mark okkar á jörðina og hafa áhrif á lífsgæði jarðarbúa ...

Þetta er tilraun. Ef þið vinnið saman og nýtið ykkur hana til fulls, munum við geta byggt á henni strax og aukið og margfaldað áhrifin næstu þrjátíu og þriggja daga lotu.[1]

Þann 16. nóvember 1991, eftir þrjátíu og þrjá daga, veitti Omri-Tas aðra gríðarmikla ívilnun. Boðberinn og chela-nemar höfðu ritað bænaskrá til Omri-Tas, þar sem þau báðu hann um að vera lengur og lofuðu honum að gefa möntrufyrirmæli fjólubláa logans. Í svari sagði Omri-Tas að fórn okkar hefði snert hann djúpt, en að hann gæti ekki dvalið alfarið á jörðinni. Hann sagði að margar aðrar reikistjörnur væru á svipuðum krossgötum og jörðin sem þyrftu mjög á nærveru hans að halda. Hins vegar var hann svo snortinn af loforðum Varðmanna logans um dagleg möntrufyrirmæli til fjólubláa logans að hann lofaði að snúa aftur til jarðar einu sinni í mánuði á þriðja degi mánaðarins í sólarhring.

Omri-Tas lýsti því yfir að hann myndi vera á jörðinni þriðja dag hvers mánaðar til að veita alheimsþjónustu með stuðningi hins mikla orsakalíkama síns og veita áhangendum og öllu mannkyni óviðjafnanlegan styrk fjólubláa logans. Á þessum degi halda Varðmenn logns bænaröð tileinkaða fjólubláa loganum í helgidómum sínum um allan heim. Þetta er dagur þegar fjólublái loginn streymir eins og hoskefla niður og við getum verið í beinu sambandi við rafræna nærveru Omri-Tas.

Saint Germain hefur sagt okkur að Omri-Tas beri slíkan styrk fjólubláa logans og sjöunda geislans í áru sinni að hann nær langt út fyrir raunverulega stærð jarðarinnar. Þannig, í mánaðarlegri bænaröð sem Omri-Tas heldur fyrir jörðina, nær orsakalíkamai hans yfir alla plánetuna. Við hliðsjón af 24 tímabeltum á plánetunni greinum við að þriðji dagur mánaðarins spannar 48 klukkustundir. Með öðrum orðum, þriðji dagur mánáðarins nær yfir 48 klukkustundir í að minnsta kosti einu tímabelti einhvers staðar á plánetunni.

Þessi mánaðarlega fjólubláa bænaröð með fjólubláa loganum er kölluð dagur Omri-Tas og Saint Germains vegna þess að þessir meistarar styrkja hann sem hefst annan dag hvers mánaðar og lýkur á þeim fjórða.

Heimildir

Pearls of Wisdom, 34. bindi, nr. 65, 5 desember 1991.

Pearls of Wisdom, 35. bindi, nr. 8, 23. febrúar 1992.

Pearls of Wisdom, 36. bindi, nr. 5, 31. janúar 1993.

Pearls of Wisdom, 41. bindi, nr. 28, 12. júlí 1998.

  1. Omri-Tas, "O the Violet Flame!" („Ó, fjólublái loginn!“) Pearls of Wisdom, 34. bindi, nr. 65, 15. desember 1991.