Vestur-Shamballa

Á gamlárskvöld 1976 spáði Gátama Búddha framtíðarfærslu kraftsviðs athvarfs síns til Ameríku. Hann sagði að Ameríka væri vissulega staðurinn þar sem allir myndu snúa aftur til kjarna, orsakar og ástæðu dharma ([þ.e.] til kenningar) [Sangha[sangha]]. Því hingað flytjum við Shamballa, hingað flytjum við þessa ljósborg einn daginn. En í bili verður það innleiðing annars kraftsviðs, Omega-þáttar Shamballa, þar sem Alfa-þátturinn helst til staðar þar sem hann er.“
Árið 1981 stofnaði Gátama Vestur-Shambhalla sitt uppi yfir „hjarta“ þess sem fylgjendur hans kalla „Innra athvarfið“. Þann 18. apríl sagði hann:
Frá Shamballa sendi ég ljóssveig. Ég hyggst koma fótunum undir grunn hins aldna ... Á þessari stundu íhuga ég — takið vel eftir — logaboga Shamballa að Innra athvarfinu þar sem hinn vestri dvalarbústaður búddhana og bódhisattvanna og verðandi bódhisattva sem eru dýrkendur Móður-ljóssins.
Þannig að „yang“ nærvera Gátama Búddha er enn á þeim bletti Shamballa í austri í ljósvakaáttund uppi yfir Góbíeyðimörkinni, og „yin“ nærvera hans er í vestri í ljósvakaáttundinni uppi yfir Gallatín-fjöllum í Norður-Klettafjöllunum, sem beinist að Hjarta hins innri athvarfs. Þessi eign, þekkt sem Royal Teton Ranch (hinn Konunglegi Teton búgarður), náttúruleg dómkirkja sem liggur að Yellowstone-garðinum, er hið efnislega hnitmið Vestur-ljósvakaathvarfs Drottins heimsins. Hér íhugum við leyndardóma innri Búddha og innri Krists og ljáum hinum þrígreinda loga okkar til að jarðtengja kraftsvið Shamballa á vesturhveli jarðar.
Gátama Búddha ræðir um þetta athvarf:
ÉG ER í hinu helga musteri Shamballa, Shamballa Vesturlanda, þar sem ljósvakaathvarf hefur einnig verið stofnað frá eilífð. Í tengslum við Athvarf hinnar guðdómlegu móður sem er spannar víðáttumikið svæði uppi yfir svokölluðum Royal Teton Ranch, sem er mitt eigið helga musteri í ljósvakaáttundinni uppi yfir Hjartanu, ef svo má að orði komast, forsalur, hið leynda hólf hjartans þaðan sem sálfarir eiga sér stað, hingað komin til að gangast undir guðlega kennslu.
Þannig, kæru vinir, er hátíðin í Hjarta innri athvarfsins á hverju sumri hátíð hinnar áttföldu orkustöðvar og hins áttfalda vegar. Það er innkoman í hið helga musteri hins Stóra hvíta bræðralags, sem vegur einstaklingsins í gegnum launhelgar okkar undir drottni Maitreya sem færir vígsluþegann til helgunar lífs síns, tjaldbúðar sinnar, sem hið helga musteri tilverunnar.[1]
Sjá einnig
Heimildir
Mark L. Prophet and Elizabeth Clare Prophet, The Masters and Their Retreats, sjá “The Western Shamballa.”
- ↑ Gautama Buddha, "The Heart Chakra of America" („Hjartaorkustöð Ameríku“), Pearls of Wisdom, 30. bindi, nr. 72, 11. desember 1987.