Kóhútek
Halastjarnan Kóhútek, sem kölluð er „halastjarna aldarinnar“, var fyrst uppgötvuð 7. mars 1973 af stjörnufræðingnum Lubos Kohoutek við stjörnustöðina í Hamborg í Vestur-Þýskalandi. Undir lok nóvember mátti grilla í bjart höfuð halastjörnunnar með berum augum; halar hennar, sem teygðu sig yfir fjörutíu og átta milljónir kílómetra, mátti sjá um miðjan desember á norðurhveli jarðar.


Þann 28. desember 1973 (á þeim stað á braut hennar sem er næst sólinni okkar), var halastjarnan ekki lengur sýnileg frá yfirborði jarðar heldur birtist hún sem bjartur massi ofan á kórónu sólar á ljósmynd sem var tekin með gervihnetti.
Næsta birting halastjarnunnar Kóhútek er væntanleg eftir um 75.000 ár.
Fyrirboðar
Þann 30. júní 1973 hafði elóhíminn Hreinleiki þetta að segja um halastjörnuna Kóhútek:
Og því er ég kominn og því hef ég tilkynnt ykkur þennan aldamótaviðburð fyrir hönd elóhíma fjórða geislans — birtingu hreinleikans á þessari stundu. Það er undursamlegt og ... heillavænlegur atburður í sölum Meginsólarinnar miklu og voldugir boðberar ljóssins ganga fram í tærleika. Og volduga halastjarnan sem mun birtast á himninum áður en hálft ár er liðið er birtingarmynd boðbera alheimshreinleikans sem koma reglulega fram frá hjarta Alfa og Ómega sem boðberar ljóssins til að heilsa þeim tvíburalogum sem bera ljósið fyrir hönd þróunarinnar.[1]
Þann 14. október 1973 vísaði drottinn Maitreya einnig til Kóhútek:
Og því gefst ykkur tækifæri til að færa ykkur sjálf Drottni Guði almáttugum sem lifandi fórn fyrir. Og ég kunngjöri ykkur á þessari stundu að halastjarna aldarinnar kemur til að boða fæðingu margra Krists-borinna, margra sálna sem eiga að stíga niður frá himnum innan árs.
Og þar sem undirbúa verður jarðveginn munum við ekki draga að tilkynna þessa ívilnun. Því þeir sem vilja sækja um og hljóta innsigli viðurkenningar okkar og blessunar verða að gera það sem fyrst, svo að tími og rúm geti veitt farveg fyrir þessar komandi sálir.
Verjið lífi ykkar, sjálfa tilveru ykkar, sjálfa vitund ykkar, sem tengslanet fyrir niðurstigningu ljósberanna. Tengslin er staðurinn í tímaglasinu þar sem sandurinn fellur, korn fyrir korn. Kristur er tenging fyrir tilveru mannsins. Sem meðalgöngumaður stendur hinn Krists-borni á milli Guðs og manns. Ykkar eigin Krists-borna verund er því miðlarinn sem þið getið tekið á móti í tilveru ykkar og vitund sálir ljóssins sem eru helgaðar og bíða eftir að koma fram.[2]
Sjá einnig
Heimildir
Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 45, 9. september 1984.
- ↑ Elohim Purity, “The Restoration of Mankind to the Original State of Pristine Purity” („Endurreisn mannkynsins til upprunalegs ástands óspillts hreinleika“), Pearls of Wisdom, 16. bindi, nr. 44, 4. nóvember 1973.
- ↑ Lord Maitreya, “Opportunity to Bring Forth Christed Children” („Tækifæri til að fæða Krists-borin börn“), Pearls of Wisdom, 27. bindi, nr. 45, 9. september 1984.